Graham Konungur er að verða of gamall fyrir ævintýrafarir, og hin áður góða heilsa hans er að bregðast. Er hann hugsar um ástand sitt ákveður hann að láta ævintýra-hatt sinn ganga til barna sinna, Rosellu og Alexanders. Er hann lætur þau fá hattinn, gefur hjarta hans sig undan stressi.. og aðeins heppni hjálpar honum að lifa af hjartaáfalllið. En Dauðinn læðist nær með hverri sekúndu. Rosella Prinsessa þolir ekki að horfa upp á föður sinn þjást, og með aðstoðar töfraspegilsins og álfadrottningu sem heitir Genesta, leggur hún upp í för til að finna ávöxt með mætti sem mun bjarga lífi föðurs hennar. Og þannig byrjar fjórði King's Quest leikurinn.
Í KQ4 erum við enn og aftur stödd í Daventry, hjá okkar einstöku hetju Graham Konungi og hans tignarlegu fjölskyldu. Núna er það dóttir hans sem sér um flakkið. Leikurinn er fullur af plottum og flækjum frá næstum því hverju einasta ævintýru sem þú gætir hugsað sér. Þú verður að muna þær sögur til þess að geta lokið leiknum, þar sem þú þarft að leika í samræmi við þær.
Grafíkin er mun betri en í KQ3, sem gefur til kynna að þeir eru ennþá að vinna að betri lausnum í grafíkinni. Þetta var fyrsti leikurinn sem notaðist við músina, en aðeins fyrir hreyfingu. Leikurinn er skemmtilegur, og fullur af smáatriðum sem þú munt njóta. Gerðu það bara. Njóttu.