AGD Interactive gaf út seinustu endurgerð af King's Quest 2 árið 2003, sama ár og þeir kláruðu King's Quest 1. Sagan af Graham heldur hér áfram, en hann hefur klárað verkefnið sem Edward Konungur heitinn setti honum, og Graham hefur verið krýndur konungur yfir Daventry. Þrátt fyrir það, vantar einn hlut... eiginkonu til að deila lífi sínu með. Graham Konungur hefur leitað alls staðar að hinni fullkomnu brúði, en hingað til hefur hann ekki fundið sína sönnu ást.
Þangað til einn örlagaríkan dag, þegar töfraspegill hans segir honum frá dömu sem er föst í annarri vídd. Graham Konungur verður ástfanginn af henni samstundis, og skiptir kórónu sinni út fyrir gamla ævintýra-hattinn sinn. Það er kominn tími fyrir nýtt krefjandi ævintýri. Enn einu sinni þarf Graham að ferðast um landið í leit að munum eða fólki sem gætu hjálpað honum í för sinni. Hann þarf að finna þrjá steina til að opna töfradyr, og frelsa verðandi brúði sína.
Þessi leikur er endurgerð af upprunalega leiknum sem var gefinn út af Sierra árið 1985, og hann bætir hann til mikils. Þeir hafa jafnvel breytt plottinu smávegis, gert söguna meira spennandi. Til dæmis hafa dyrnar sína eigin sögu. Og að sjálfsögðu hafa grafíkin og tónlistin bæst til muna. Eins og áður, þá verður þú að prufa leikinn til að trúa muninum.
Smá í endann. Upprunalegi leikurinn hét King's Quest 2 - Romancing the Throne, en AGD Interactive ákvað að kalla endurgerðina King's Quest 2 - Romancing the Stones.