Eftir að það var augljóst hversu vel quest serían (SQ) seldist, ákvað Sierra að skapa nýjan flokk fyrir leikjaunnendur um allan heim. Í þetta skipti var athyglinni beint að heimi bandarísku lögreglunnar. PQ1 var gerður eins raunverulegur og möglegt var. Til þess að ná bófunum, verður þú að fylgja ströngu ferli lögreglunnar, ef það misheppnast, munu vondu kallarnir ganga lausir. Þetta er VGA endurgerð af fyrsta Police Quest leiknum, sem var gerð af Sierra.
Þú leikur Sonny Bonds, nýliða í löggunni með glæsta framtíð. Þú vinnur á aðallögreglustöðinni í Lytton, hljóðlátur og vinalegur bær. Þangað til dag einn, þegar eiturlyfjakonungurinn Jesse Bains ákveður að nota bæinn sem leikvöll sinn. Þessi leikur gefur þér innsýn inn í líf alvöru lögreglumanna, og það er ekki auðvelt líf. Hættan leynist allsstaðar í bænum. Gott ráð er að vista oft.
Leikurinn gæti verið erfiður til að byrja með, en ekki gefast upp. Þetta er frábær leikur, þegar þú nærð tökum á honum. Ég verð samt að segja þetta, að point-and-click VGA endurgerðin er mun auðveldari en fyrsta útgáfan. Því miður finnst mér að framleiðendurnir hafi ekki staðis sig vel í að bæta leikinn það mikið, miðað við aðrar endurgerðir. Það er mitt álit, en það mun kosta leikinn eitt stig. Svo leikurinn fær samtals fjögur stig.