Eftir að það var augljóst hversu vel quest serían (SQ) seldist, ákvað Sierra að skapa nýjan flokk fyrir leikjaunnendur um allan heim. Í þetta skipti var athyglinni beint að heimi bandarísku lögreglunnar. PQ1 var gerður eins raunverulegur og möglegt var. Til þess að ná bófunum, verður þú að fylgja ströngu ferli lögreglunnar, ef það misheppnast, munu vondu kallarnir ganga lausir.
Þú leikur Sonny Bonds, nýliða í löggunni með glæsta framtíð. Þú vinnur á aðallögreglustöðinni í Lytton, hljóðlátur og vinalegur bær. Þangað til dag einn, þegar eiturlyfjakonungurinn Jesse Bains ákveður að nota bæinn sem leikvöll sinn. Þessi leikur gefur þér innsýn inn í líf alvöru lögreglumanna, og það er ekki auðvelt líf. Hættan leynist allsstaðar í bænum. Gott ráð er að vista oft.
Leikurinn gæti verið erfiður til að byrja með, en ekki gefast upp. Þetta er frábær leikur, þegar þú nærð tökum á honum. Því miður gat ég ekki fundið leiðarvísi með leiknum (þú getur fengið leiðarvísi með seinni PQ leikjum), en ég setti inn walkthrough, ef þú skyldir festast.