Allir hljóta að hafa heyrt um Bardaga Skák (Battle Chess), Og margir elska hann. Hann er LANG vinsælasti skákleikur sem hefur verið gerður fyrir PC tölvur.
Hvað er það svo sem það sem dregur fólk að spila þennan leik í staðinn fyrir að spila á móti vini?
Frábæru Hreyfingarnar. Ekkert er eins skemmtilegt og að horfa á þessa litlu taflmenn vakna til lífs og berja hvorn annan í buff. Hver bardagi er sérstakur og sniðugur á sinn eigin hátt. Uppáhaldið mitt er þegar kóngurinn notar hin konuglega staf eins og hafnarboltakylfu og slær sprengju að riddaranum. Andlitið á riddaranum er ólýsanlegt.
Leikurinn hefur líka mjög góða tölvugreind þannig að þú færð dálítla áskorun frá leiknum (jafnvel ef þú sért meistari). Það er það eina sem er að segja um þennan leik. Þetta er skák með hreyfingar... en við ELSKUM hann allir.
Fimm stig pottþétt!