Dear Abandonia visitors: Help us keep Abandonia free with a small donation. Abandonia is like an old gaming arcade with only original games. Abandonia helps you have fun four hours and years. If Abandonia is useful to you, please help us forget fundraising and get back to Abandonia.


When Abandonia was founded it was to collect and present all old games where the copyright protection had been abandoned, hence the term ’abandonware’ and the site name Abandonia.com. We are still keeping the site open and free and will appreciate your support to help it stay that way.

‐ Thank you from the Abandonia Team

We are trying to make it easy for people in every country to donate. Please let us know how we could make it easier for you.

Please give whatever you can to help us.

Amount: Currancy:

or
select language!
Icelandic
password:
not a member yet? register here! forgot your password? reset here!

Download Amazing Spider-Man, The

Amazing Spider-Man, The
 
Producer:
Publisher:
Year:
Keywords:
Size:
173 kb
Compability:

 

Download




Hefur þig einhverntíman dreymt um að vera ofurhetja? Dreymt um að sigra vonda gæjann og bjarga dömunni úr vandræðunum? Þá gæti þetta verið leikurinn fyrir þig. Þú spilar mjög fræga ofurhetju í þessum. Jahá.. Mjög fræga. Við þekkjum öll þessa hetju úr Marvel blöðunum; maðurinn sem var bitinn af geislavirkri köngurló og breyttist þar með í eina öflugustu ofurhetju allra tíma: Köngurlóarmanninn.

Þegar leikurinn byrjar er kærasta Köngurlóarmannsinns, Mary Jane, í vandræðum þar sem hinn illi Mysterio hefur rænt henni og tekið hana með sér á felustaðinn sinn, Rockwell Studios.

En auðvitað fylgir Köngurlóarmaðurinn fast á eftir honum.

Þannig er það þitt hlutverk að fylgja Köngurlógarmanninnum í gegn um hans mestu háskaför hingað til! Þú þarft að elta Mysterio djúpt inn í hans heimasvæði til að bjarga Mary Jane.

Og við hverju má Köngurlóarmaðurinn búast þarna niðri? Eiginlega bara fullt af þrautum. Í raun þarftu bara að leysa þrautir í gegn um leikinn, reyna að opna þessa hurð, fara yfir þessa gjá eða komast framhjá þessu skrímsli. Þessar þrautir geta verið krefjandi en flestar eru ekki það erfiðar. Mér fannst þær allavega skemmtilegar!

Sem betur fer hefur Köngurlóarmaðurinn nokkra sérstaka hæfileika til að redda sér, og treystir hann mest á hæfileikann til að spúa vef. Þú getur notað vefinn til að sveifla þér á milli svæða, kveikja á rofum eða binda niður skrímsli. Farðu samt varlega því að skrímsli sem eru bundin niður geta samt meitt þig og ef þú hundsar þau mun hetjan þín deyja fyrr en fluga í köngurlóarvef. Köngurlóarmaðurinn getur líka gengið á veggjum og meira að segja á loftinu (sem á það til að vera fyndið). En það þarf líka að fara varlega í þessu af því að sumir veggir eru þannig að jafnvel Köngurlóarmaðurinn á í vandræðum með að halda sér á þeim, og varla viltu að hann falli ofan í logandi pitt, er það nokkuð?

Ef þú vilt ekki að Lói detti í pittinn þá er sniðut að vita aðeins hvernig maður stjórnar honum. Mér fannst stjórnunin vera frekar bláttáfram: Hægri og vinstri til að labba, ‘space’ og einhver átt (líka á ská) til að ‘skjóta’ vef og ‘Upp’ fer.. tjah.. Upp! Það tekur svolítinn tíma að venjast því hvernig Lói hreyfir sig, en örvæntu samt ekki því að þú átt eftir að vera að sveifla þér út um allt á nó-inu!

Ævintýri Lóa gerast út um allt Rockwell Studios og hann á auðvitað eftir að meiða sig af og til. En hetjan okkar þarf ekkert að hræðast þar sem það eru hergergi hér og þar í leiknum þar sem hann getur læknað sig og vistað árangurinn sinn. Þú þekkir þessi herbergi á stórum klappara og leyftrandi, bláu gólfi. Þú læknast með því að standa á gólfinu og vistar með því að loka klapparanum.

Því miður er grafíkin í Amazing Spiderman ekkert til að hrópa húrra fyrir. Hún er ekki góð en hún er alls ekkert hræðileg heldur. Tónlistin er betri en ég bjóst við en, eins og alltaf þegar innbyggði PC hátalarinn á í hlut, verður hún pirrandi eftir soldinn tíma.

Það er líka leiðinlegt að einhverra hluta vegna vistar leikurinn ekki árangurinn þinn. Stigin mín vistuðust ekki og ekki heldur staðsetningin mín. Í hvert einasta sinn sem ég kveikti á leiknum þurfti ég að byrja upp á nýtt. Frekar leiðinlegt.

En eftir hverju ertu annars að bíða? Mary Jane þarfnast þín! Fljótur Lói, halaðu leiknum niður og sigraðu Mysterio! Gangi þér vel!


advertisment

Reviewed by: Doubler / Screenshots by: Doubler / Uploaded by: The Fifth Horseman / Translated by: gorkur / share on facebook
 

User Reviews

Ninja Casino Games


Your Ad Here