31-12-2004
Ég hef verið of upptekin til að þýða núna síðustu tvo daga, þið verðið að fyrirgefa. Sama virðist eiga við Dorie (við vorum uppteknar saman, þannig að það er kannski ekkert skrýtið). Ég er semsagt ekki með leik núna, ég vildi bara biðjast afsökunar á ófyrirgefanlegri leti minni, og óska ykkur gleðilegs nýs árs, og ég óska ykkur gleði og heilla á komandi ári. Gangið hægt um gleðinnar dyr ;) Takk fyrir árið sem er að líða!
posted by Puffin // 31-12-2004 // permalink