Þú vaknar í klósettklefa á bar í Chicago og þú gætir verið að hugsa að þetta eigi eftir að vera löng helgi. Þá tekurðu eftir því að þú ert með sprautufar á handleggnum og að byssan í frakkavasanum þínum er aðeins hlaðin þrem skotum en hin þrjú eru í manninum á skrifstofunni uppi. Drapstu hann? Þú manst það ekki... reyndar mannstu ekki eftir neinu.
Velkominn í Déjá vu, leikur þar sem löggurnar vilja ná þér lifandi, allir aðrir vilja drepa þig og þú vilt bara fá að vita hvað er í gangi. Í gegn um þennan ævintýra- og ráðgátuleik frá Icom þarftu að skoða Chicago borg, allt frá subbulegum bar að flottri höll upp á hæðinni, á meðan þú reynir að finna út hver þú ert og að halda þér lifandi. Þú veist ekkert hvað er í gangi en þú veist að það er eitthvað dularfullt þannig að farðu varlega.
Déjá vu er stjórnað með músinni og notast við gluggaumhverfi til þess að halda utan um hlutina sem þú ert með, umhverfið, áttir sem þú getur farið í, texta og allar 8 skiparnirnar sem þú getur notað. Þær eru frekar einfaldar í notkun, en það getur verið erfitt að taka upp smærri hluti. Það er líka auðvelt að fylla upp skjáinn með gluggum.
Persónan er vopnaður byssunni sinni og hnefunum á meðan þú ferðast í gegn um borgina, en þú verður að fara varlega þegar þú skýtur af byssunni því löggan er að leita að þér. Þú verður að finna hluti til þess að hjálpa þér að finna út hvert þú átt að fara, af því að þú mannst ekkert. Þig vantar líka peninga til að ferðast með leigubílum.
Hljóðið í leiknum er ekkert til að tala um. Yfirleitt heyrirðu bara í sprengingum, hnefahöggum eða sírenum en engin af þessum hljóðum hjálpa þér neitt. Þú getur spilað leikinn án hljóðs án þess að missa af neinu mikilvægu.
Grafíkin virkar alveg en gerir ekkert fyrir leikinn. Myndirnar hjálpa þér að sjá hvað hver hlutur er en þú þarft samt að lesa lýsingarnar til þess að skilja hvað sumir hlutir eru og hvað þeir gera. Déjá vu þjáist af miklum litaskorti miðað við nýrri leiki og fær því aðeins miðlungs einkunn.
Déjá vu er mjög krefjandi leikur og er mælt með því að vista leikinn oft og í mörgum skrám af því að mörg mistök geta leitt annaðhvort til dauða eða handtöku, sem gefur leiknum þínum snöggan og oft ofbeldisfullan endir. Déjá vu hefur eins konar tímatakmörk af því að minnið þitt hverfur hratt út af hverju sem það var sem þeir sprautuðu í handlegginn á þér. Ef þú finnur ekki lækningu fljótt mun á endanum líða yfir þig og þú deyrð kvalarfullum dauðdaga. Fyrir utan það að finna lækningu þarftu líka að safna saman sönnunargögnum um þá sem komu sökinni á þig og eyðileggja sönnunargögning sem þeir skildu eftir til að koma henni á þig. Það ert aðeins þú sem getur hreinsað þitt eigið nafn... ef þú bara mundir hvað það væri.