Dear Abandonia visitors: Help us keep Abandonia free with a small donation. Abandonia is like an old gaming arcade with only original games. Abandonia helps you have fun four hours and years. If Abandonia is useful to you, please help us forget fundraising and get back to Abandonia.


When Abandonia was founded it was to collect and present all old games where the copyright protection had been abandoned, hence the term ’abandonware’ and the site name Abandonia.com. We are still keeping the site open and free and will appreciate your support to help it stay that way.

‐ Thank you from the Abandonia Team

We are trying to make it easy for people in every country to donate. Please let us know how we could make it easier for you.

Please give whatever you can to help us.

Amount: Currancy:

or
select language!
Icelandic
password:
not a member yet? register here! forgot your password? reset here!

Download Bruce Lee

Bruce Lee
 
Producer:
Publisher:
Year:
Keywords:
Size:
39 kb
Compability:

 

Download




Ég er sannfærður um að allir sem lesa þessa umsögn hafi einhverntíman heyrt um Bruce Lee, nafn sem er oftast tengt við slagsmálamyndir eða bara bardagalistir yfirleitt. Þess vegna ætti það ekki að koma neinum á óvart að tölvuleikja iðnaðurinn vildi græða smá peninga á þessu vel þekkta nafni. Það var Datasoft sem fengu hugmyndina um að framleiða leik titlaðan Bruce Lee sem gerði mikla lukku! Nafnið hjálpaði reyndar mikið til. Ímyndaðu þér bara hvernig það hefur hljómað þegar þú sagðir við vini þína í skólanum að þú værir að spila Bruce Lee leik! Allavega hljómaði það miklu betur en ef þú hefðir sagst vera að spila Bouncing Babies. ;)

Þessi leikur er einn af fyrstu platform hasar leikjunum. Spilunin er einföld. Þú getur hlaupið til vinstri eða hægri, lagst niður (sem gerir það að verkum að óvinirnir geta ekki lamið þig), hoppað (klifrað) eða lamið. Það eru tvær tegunir af höggum sem þú getur gert. Þú getur kýlt (Ýttu á space (bil) á meðan þú stendur kyrr) eða gert flugspark (space á meðan þú hleypur til hægri eða vinstri). Á meðan þú hleypur, klifrar og stekkur út um allt þarftu að safna einhverjum glóandi hlutum (sem ég er ekki viss um hvað eru). Þegar þú nærð þeim öllum opnast leiðir að nýjum svæðum (til dæmis þegar þú nærð öllum í fyrstu þrem herbergjunum þá opnast hleri niður í undirheima).

Það eru auðvitað ýmsar hindranir sem verða í vegi þínum. Það eru geislar sem drepa þig strax, hverir sem útrýma þér og svo eru tveir gaurar sem reyna að stoppa þig. Það er frekar töff útlítandi Ninja og feitur Sumo glýmumaður. Þeir byrja að lumbra á þér um leið og þeir ná þér. Passaðu þig sérstaklega á Sumo gaurnum, hann er sterkari en Ninjan og getur notað sömu brögð og þú. Hann er líka sterkari þannig að þú verður að lemja hann oftar til þess að hann hverfi (mundu bara að markmiðið í leiknum er ekki að berjast við þessa gaura).

Hingað til hefur leikurinn hljómað eins og venjulegur miðlungs platform leikur. En hann hefur samt upp á ýmislegt að bjóða. Hann styður nefninlega fjórar mismunandi leikgerðir og allt að þrír geta spilað í einu!!! Þú getur spilað í eins- eða tvímennings þar sem tölvan stjórnar báðum óvinum og spilararnir skiptast á. Þegar annar deyr byrjar hinn að spila. En þú getur líka fengið annan spilara til að spila sem óvinurinn! Þetta mundi þýða að þú værir Bruce Lee og vinur þinn mundi stjórna Sumo gaurnum og reyndi að stoppa þig! Því miður þarftu samt stýripinna til að geta þetta.

Því miður er PC leikurinn mun verri en Commodore 64 útgáfan var. Fyrir utan PC speaker hljóðið og CGA grafíkina var leikurinn líka með slæmt stjórnkerfi. Þegar þú ýtir á takka til að hlaupa þá heldurðu áfram að hlaupa þangað til eitthvað stoppar þig (það er mjög auðvelt að drepast svona).

Ég kaus C64 útgáfuna algjörlega fram yfir þessa og mæli með því að þú kíkir á systur síðuna okkar (Abandonia Reloaded), af því að þar geturðu náð í Bruce Lee Remake á http://www.reloaded.org/download/Bruce-Lee/73. Endurgerðin er næstum því eins og C64 leikurinn.

Tæknilegar Upplýsingar
Þú þarft að hægja á öllu til að spila leikinn. Þú þarft að stilla DOSBox á einhverja 200 – 250 ‘cycles’ (gerir það með því að ýta á CTR+F11).
Veldu ‘B’ þegar þú ert spurður um skjátýpuna.
Þú þarft að nota talnaborðið til að spila (annars geturðu ekki hoppað til hliðar) og til að lemja ýtirðu á space.


advertisment

Reviewed by: Sebatianos / Screenshots by: Sebatianos / Uploaded by: Sebatianos / Translated by: gorkur / share on facebook
 

User Reviews

Ninja Casino Games


Your Ad Here